Rismál

by Sólstafir

From the album: Ótta

Track 3 of 8 on Ótta (2014).

Duration: 04:24

Ótta cover art

Lyrics for Rismál

Svarthvítur í huga mér Alltaf er vetur hér. Hvar eru litir norðursumars, Æskublóm sakleysis? Eru draumar bernskunnar Nú uppi dagaðir? Já erfitt er að halda í Lífsins sumarnón. Formúlur ljóss ég rita Í blárri skímunni. Bakkus mér nú býður í Skuggabræðra boð. Brestur í gömlum þökum. Heyrirðu stormsins nið? Hjartarætur fylltar kuli, Svo langt í vorboðann. Milli óttu og árs dagsmáls Sofa mannanna börn Og mávagarg bergmálar Yfir reykjavíkurborg.

Listen On

More from Ótta

  1. Lágnætti
  2. Ótta
  3. Rismál
  4. Dagmál
  5. Miðdegi
  6. Nón
  7. Miðaftann
  8. Náttmál